Sjónvarpsáhorf

Mér sýnist að í febrúar 2005 hafi áhorf á Stöð 2 verið 526 mín. en er núna 283 mín. Markaðshlutdeild farið úr 42% í 21%. ( meðaláhorf 12 til 80 ára )

Sjónvarpið fer úr 39% í 45%.  Ríkið að stefna í það að vera markaðsráðandi.

Samkvæmt þessu sýnist mér að reglan um 25%  hámarks eignaraðild sem er í væntanlegu fjölmiðlafrumvarpi myndi ekki gilda ef Stöð2 væri sér fyrirtæki og ef þau lög væru í gildi í dag.

Þar segir:

  • Einstaklingur eða fyrirtæki og skyldir aðilar mega ekki eiga meira en 25% eignarhlut í útvarpsstöð ef markaðshlutdeild er svo mikil sem segir í 2. mgr.

  •     Takmarkanir á eignarhaldi skv. 1. mgr. gilda um þær hljóðvarps- og sjónvarpsstöðvar sem mælast með þriðjung í heildaráhorfi eða heildarhlustun íslenskra dagskrárstöðva a.m.k. í þrjá mánuði samfleytt. Heildaráhorf og heildarhlustun reiknast á grundvelli mælinga skv. 6. mgr. með því að margfalda fjölda notenda yfir mánuðinn með fjölda mínútna sem hver notandi horfir eða hlustar yfir mánuðinn og reikna síðan hlutfall hverrar stöðvar.

17. nóvember 2006 klukkan 16:57
Valdimar Birgisson
Atli skrifar ...
Athyglisverð niðurstaða hjá þér um áhorfið. Annars eru stafirnir svo litlir hjá þér að það er varla hægt að lesa þá. Auk þess renna þeir saman við bakgrunninn.

Atli
19. nóvember 2006 klukkan 19:15

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing